Friday, October 2, 2015

Októberklúbbur hjá Ágústu 2015

Litlar pizzur
Snittubrauð, skorið í sneiðar. Pizzusósa, pepperóni, rifinn ostur yfir. Hitað í nokkrar mínútur. 



Tartalettur með aspargus og rækjum (ca 30 stk) – Nóg að gera hálfa uppskrift
3 pelar af rjóma
5 dósir af gænum spergilbitum (aspas)
1 dós sveppabitar
½ kg úthafsrækjur
smjör
hveiti
tartalettu form

Gerð er smjörbolla úr hveitinu og smjörinu og síðan hrærð út með rjómanum og safanum af spergilbitunum uns sósan er hæfilega þykk. Þá er spergilbitunum og sveppabitunum bætt útí (safinn af sveppunum er ekki notaður) og allt hitað hægt og hrært varlega í þar til suðan kemur upp. Þá er potturinn tekinn af hellunni og rækjunum blandað út í og síðan látið standa í 30 mínútur undir loki. Rétturinn er síðan settur í formin og hitaður við ca. 120º í nokkrar mínútur áður hann er borinn á borð. — Sveppunum má sleppa ef svo ber undir; ætla má 2-3 tartalettur á mann. Uppskriftin dugir fyrir 10-15 manns en óhætt að gera ríflegri skammt og geyma í kæli í 1-2 daga og grípa til og hita upp eftir þörfum þegar svengdin segir til sín.




Kjúklingasalat
2 kjúklingabringur klofnar í tvennt til að fá 4 þynnri steikur. Steiktar í 2 msk olíu á pönnu þar til þær eru gegnumsteiktar. Kryddaðar með salti og pipar. 
6-8 beikonsneiðar ásamt 1-2 perum, skornar í þunna báta, steiktar saman á pönnu. 
200 gr blandað salat sett á fat, Kjúklingabringurnar skornar í bita ásamt beikoninu og raðað ofan á salatið. Perur settar með. 
3-4 msk olía, 2-3 msk balsamedik blandað saman og dreypt yfir. 
Kryddað með salti og pipar. 



Grænmetissúpa
Blómkál, einn haus
Gulrætur, ca. 10 litlar
Ca 6 kartöflur
2 msk masaman mauki
2 hvítlauksrif og hálfur laukur
1,5 tening af nautakrafti
Í lokin: salt og pipar, smá af chili dufti, 1 dós 18% sýrður rjómi, 1 dós af kósosmjólk (stór).

Framkvæmd: laukur steiktur í olíu og mauki og nautakrafti, gulrætur brytjaðar gróft (2 cm) og settar með. Kókosmjólk og jafn mikið af vatni. Kartöflur og þykku stönglarnir af blómkáli sett í. Eftir um 10 mín fer restin af blómkáli út í og soðið í 5-7 mín. Saltað og piprað. Maukað gróft. Látið malla aðeins. og smakkað til með chili (og salti og pipar). Slökkt undir og sýrðum rjóma bætt í. 





Eplakaka frá Ingu
1 kg græn epli
1/2 dl vatn
100 g sykur
100 g smjör
85. g sykur
2 eggjarauður
100 g hakkaðar möndlur
1 dl kókosmjöl
1 sítróna (safi og börkur)
3 eggjahvítur

Vanillusósa:
1 eggjarauða
1 msk sykur
2 tsk vanillusykur
2 1/2 dl rjómi

Afhýðið eplin og skerið í bita. Sjóðið saman vatn og sykur og setjið eplin út í. Sjóðið þar til eplin verða mjúk en ekki mauksoðin (um 3-5 mínútur). Setjið í grunnt, smurt eldfast mót.

Þeytið saman smjör og sykur þar til hræran verður létt og ljós. Bætið eggjarauðunum út í og síðan möndlum, kókosmjöli, sítrónusafa og berki. Stífþeytið eggjahvíturnar, blandið varlega saman við deigið og setjið yfir eplin í forminu. 

Bakið við 175° í 45 mínútur.

Vanillusósa:
Þeytið eggjarauðu með sykri og vanillusykri. Þeytið rjómann og blandið saman við eggjarauðuna. Geymið í ísskáp í a.m.k. 15 mínútur


No comments:

Post a Comment