Brokkálsalat með beikoni
Dressing:
2 1/2 dl. sýrður rjómi
2 tesk. rauðvínsedik
1 1/2 matsk. sykur
Hrærið saman sýrðum rjóma, rauðvínsediki og sykri og kælið í klukkutíma.
Salat:
300 gr. beikon í mjög litlum bitum
800 gr. brokkoli í mjög litlum bitum
1 rauðlaukur mjög smátt skorinn (um 100 gr.)
1 1/2 bolli sólblómafræ
1 1/2 bolli rúsínur
Steikið beikon þar til það er stökkt og látið renna af því á eldhúspappír.
Setjið brokkoli, sólblómafræ, rúsínur, rauðlauk og helminginn af beikoninu saman í skál. Hellið dressingunni yfir og blandið saman. Skreytið með afganginum af beikoninu.
Kjúklingasalat með hrísgrjónum
2-3 hvítlauksrif skorin í sneiðar og steikt í örstutta stund í olíu á pönnu. 1 msk af turmeric bætt útí og svolitlu af salti og pipar.
Um 3 bollar af hrísgrjónum bætt á pönnuna og hrært vel saman við kryddblönduna. Kjúklingasoði bætt í og hrísgrjónin soðin.
Kjúklingabringur skornar í frekar smáa bita og steiktar í stutta stund. Bætt útí hrísgrjónapönnuna ásamt rúsínum (eða trönuberjum) og kasjúnhnetum og allt látið hitna saman. Bætt við kryddið ef þarf.
Haustleg og arómatísk súpa með grilluðu eggaldini, tómat og hvítlauk
2 eggaldin
3 heilir hvítlaukar
5-6 tómatar
salt og pipar
1-2 msk. jómfrúarolía
1 l. kjúklingasoð
1 dós niðursoðnir tómatar
200 ml. rjómi
Skolið af fjórum stórum tómötunum og tveimur eggaldinum og skerið í sneiðar. Leggið í ofnskúffu og hellið smáræði af jómfrúarolíu yfir, saltið og piprið. Hellið hálfri msk af jómfrúarolíu yfir hvern og einn af þremur hvítlaukum og setjið í álpappír.
Bakið í ofni, 200 gráðu heitum, þangað til að grænmetið fer að taka lit - samtals um 45-50 mínútur. Hitið einn lítra af kjúklingasoði í potti ásamt einni dós af góðum niðursoðnum tómötum. Þegar grænmetið er tilbúið takið þið það úr ofninum, takið hýðið af eggaldininu frá, kreistið hvítlaukinn úr papprínum og bætið svo öllu í súpuna. Blandið með töfrasprota. Bætið að lokum 200 ml af rjóma saman við, hitið að suðu. Smakkið til og saltið og piprið meira eftir smekk.









No comments:
Post a Comment