4 stórar kartöflur
1 laukur
4 egg
1/2 - 1 líter ólífuolía
Sjávarsalt eftir smekk
Afhýðið kartöflurnar, skerið þær í tvennt og síðan í þunnar sneiðar. Skerið laukinn í tvennt og síðan í þunnar sneiðar.
Ólífuolíunni hellt í pott, kartöflurnar settar út í kalda olíuna, hitað að suðu og látið sjóða við vægan hita í 10 mínútur. Lauknum bætt við og soðið áfram í 10 mínútur. Blöndunni hellt í sigti og látið standa þar til olían hefur runnið vel af. Geymið olíuna því hana má vel nota aftur.
Brjótið eggin í skál, hrærið þau lauslega saman og saltið. Blandið kartöflunum og lauknum saman við og hellið blöndunni á djúpa ca. 20 sm. víða pönnu. Eldið eggjakökuna við vægan hita þar til eggin eru nánast alveg hlaupin. Þá er eggjakökunni snúið við og hún steikt á hinni hliðinni.
Tortillan er góð bæði heit og köld.
500 gr. eldað grasker
3 perur
1 laukur
25 gr. smjör
2 matsk. ólífuolía
1/2 l. vatn eða grænmetissoð
100 gr. heslihnetur
100 gr. sykur
100 gr. gráðostur
salt og pipar
Saxið laukinn smátt, afhýðið perurnar og skerið þær í bita. Steikið lauk, perur og grasker við vægan hita í smjörinu og olíunni í um 10 mínútur. Bætið vatni eða soði við og sjóðið í um 15 mínútur. Kryddið með salti og pipar og maukið súpuna.
Heslihnetupralín: Setjið heslihnetur og sykur á pönnu og hitið varlega þar til sykurinn bráðnar og verður að karamellu. Hellið blöndunni á bökunarpappír og látið kólna. Þegar blandan er orðin köld er hún söxuð gróft.
Berið súpuna fram heita og setjið í hverja skál mulinn gráðost og heslihnetupralín. Dreifið að lokum nokkrum dropum af góðri ólífuolíu yfir hvern disk.
Súkkulaðipavlova
5 eggjahvítur
250 gr. sykur
3 matsk. kakó
1 tesk. balsam edik
50 gr. saxað suðusúkkulaði
Ofan á:
3 dl. þeyttur rjómi
250 gr. hindber
rifið súkkulaði
Eggjahvítur og sykur þeytt þar til stíft og glansandi. Kakó og ediki blandað varlega saman við.
20 - 23 sm. hringur teiknaður á bökunarpappír og marensinn settur inn í hann, athugið að hann á að vera frekar hár. Sett inn í 180° heitan ofn, hitinn strax lækkaður í 150° og bakað í 1 klukkustund og 15 mínútur. Þá er slökkt á ofninum og marensinn látinn kólna í honum.
Rjóminn settur ofan á kökuna þegar hún er orðin köld og skreytt með hindberjum og rifnu súkkulaði. Best er að setja rjómann og berin á kökuna rétt áður en á að borða hana.






No comments:
Post a Comment