Eplasídersbrauð
7 dl hveiti
1 msk. lyftiduft
1 ½ tsk. salt
4 msk. hlynsíróp
100 g smjör, brætt
1 flaska (330 ml) Somersby-eplasíder
½ dl vatn
Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti. Takið 3-4 msk. af bræddu smjöri frá og blandið hlynsírópi saman við restina af smjörinu. Setjið smjörblönduna, eplasíder og vatn saman við hveitiblönduna og hrærið létt með sleif eða sleikju, ekki hræra of mikið, bara þannig að allt blandist vel.
Setjið deigið í formkökuform sem hefur verið klætt með bökunarpappír og hellið smjörinu sem tekið var frá yfir brauðið. Bakið við 190° í 45-55 mín. eða þar til prjóni sem stungið er í miðjuna kemur hreinn út.
Berið fram volgt og gjarnan með hlynsíróps-smjöri. Einnig passar brennt smjör eða praline-smjör vel með þessu brauði.
Kínóasalat með fetaosti, sítrónu og kryddjurtum
3-4 dl soðið kínóa
250 g kirsuberjatómatar, skornir í fernt
½ -1 gúrka, fræhreinsuð og skorin í litla bita
1 bakki blaðlauksspírur
100-150 g hreinn fetaostur, mulinn gróft
1 búnt fersk steinselja, smátt söxuð
4-5 greinar fersk mynta, smátt söxuð
safi úr 1 sítrónu
½ dl jómfrúarólífuolía
gróft sjávarsalt
nýmalaður svartur pipar
Spínatsalat sett í botninn – og líka rucola ef vill. Blandið öllu saman og bragðbætið með salti og pipar.
Þetta salat geymist sérstaklega vel í kæli og er tilvalið að taka með í nesti. Berið það gjarnan fram með auka sítrónusneið og/eða pepper
Fylltar paprikur – í ofni
Skera paprikur í tvennt og fræhreinsa
Fylling:
- Kinóa eða kúskus
- Smurostur af ýmsu tagi hrært saman við + mjúkt smjör
- Paprikur – tómatur – vorlaukur - saxað smátt og hrært saman
- Rifinn ostur settur yfir – sett í ofn þar til ostur gylltur
Sveppasmjör
4-5 msk. mjúkt smjör
1 msk. sveppakraftur
örlítið salt
Hrærið saman þar til allt er vel samlagað. Bragbætið með salti og pipar.
Ungversk sveppasúpa
50 g smjör, ósaltað
1 msk. olía
1 laukur, afhýddur og saxaður smátt
450 g sveppir, skornir í sneiðar (4-6 sveppir til að setja ofan á
súpuna)
3 msk. hveiti
2-4 stk. ungversk paprika (notaði íslenska papriku og grillaði þrjár og maukaði þær. Saxaði tvær frekar smátt útí. Bætti paprikusósu úr krukku út í til þykkja og gera meiri massa)
700 ml grænmetissoð eða kjúklingasoð
3 msk. sojasósa
240 ml nýmjólk
115 g sýrður rjómi
1 msk. sítrónusafi
1 hnefafylli söxuð steinselja
gróft sjávarsalt
nýmalaður svartur pipar
Bræðið smjörið í meðalstórum potti með olíunni á miðlungshita. Bætið við lauk og eldið þar til laukurinn verður glær. Bætið við sveppum og eldið saman í um 10-15 mín. eða þar til vökvinn frá sveppunum er að mestu gufaður upp. Bætið hveiti og papriku saman við. Eldið í um 2-3 mín. Hellið soði, sojasósu og mjólk saman við. Komið upp að suðu og lækkið undir pottinum. Látið súpuna malla í 10 mín. Takið súpuna af hitanum og maukið með töfrasprota eða setjið súpuna í blandara.
Hrærið sýrða rjómanum, sítrónusafanum og steinseljunni saman í skál. Bragðbætið með salti og pipar og berið súpuna fram heita með sýrða rjómanum.
Steikið aukalega sveppi og setjið út í súpuna rétt áður en hún er borin fram, það er bæði fallegt og gefur gott bit í súpuna, þetta er þó ekki nauðsynlegt.
Súkkulaðiskel:
150 g hveiti
20 g kakó
60 g flórsykur
½ tsk. salt
130 g ósaltað smjör, kalt og skorið í teninga
1 egg, hrært
Setjið hveiti, kakóduft, flórsykur, salt og smjör í matvinnsluvél.Vinnið saman í stuttum slögum, 10-15 sinnum, eða þar til blandan tekur á sig kornótta áferð. Setjið eggið út í og vinnið saman í stuttum
slögum þar til eggið hefur blandast saman við. Deigið verður líkt og sandur á þessu stigi en mun loða saman þegar því er þrýst ofan íbotninn á forminu. Hvolfið blöndunni ofan í 25 cm bökunarform með fjarlægjanlegum botni og þrýstið deiginu vel ofan í botninn og með fram hliðunum. Gætið samt að hafa skelina ekki of þykka, ef notað er minna bökunarmót gæti þurft að henda hluta af deiginu.
Setjið skelina í frysti í eina klukkustund. Hitið ofninn í 180°C. Leggið svo bökunarpappír ofan áskelina og hellið því næst þurrkuðum baunum eða öðru fargi ofan á. Bakið í 20 mínútur. Fjarlægið þá pappírinn og fargið og setjið aftur inn í ofn og bakið í 15-20 mínútur. Látið skelina kólna alveg á vírrekka áður en hún er fjarlægð úr forminu.
Súkkulaðifylling:
250 g 70% súkkulaði (eða suðusúkkulaði), saxað
3 dl rjómi
60 g smjör, við stofuhita og skorið í teninga
100 g blönduð ber, t.d. jarðarber, bláber og hindber
20 g sneiddar heslihnetur, ristaðar
Setjið súkkulaðið í meðalstóra skál. Hellið rjómanum í lítinn pott og hitið yfir meðalháum hita þar til rjóminn nálgast suðumark. Hellið helmingnum af heitum rjómanum yfir súkkulaðið. Bíðið í smástund til að leyfa súkkulaðinu að mýkjast. Hrærið með písk og hellið síðan restinni af rjómanum ofan í skálina og blandið öllu vel saman. Skiptið yfir í sleikju og hrærið smjörinu saman við þar til blandan verður kekkjalaus og gljáandi, látið standa í u.þ.b.15 mínútur. Hellið súkkulaðiblöndunni ofan í skelina og smyrjið jafnt yfir. Skreytið með berjum og sneiddum heslihnetum.
Pensla má bökuna með volgri apríkósusultu til að fá fallegan gljáa á berin. Látið bökuna jafna sig í kæli í u.þ.b. 30 mínútur áður en hún er borin fram.
Bakan geymist vel í kæli í u.þ.b. 2 daga.











No comments:
Post a Comment