Gulrótahummus
500 gr. gulrætur
1 hvítlauksrif
1 tesk cumin
1 tesk koriander
6 matsk ólífuolía
1 tesk hunang
Safi úr hálfri sítrónu
Safi úr hálfri appelsínu
3 matsk. tahini
Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
2 matsk. vatn
Skerið gulræturnar í 4-5 sm. bita og setjið í lítið eldfast mót með loki. Bætið hvítlauknum við ásamt vatninu og kryddið með salti og pipar. Bakið við 200° í um það bil 35 mínútur.
Þeytið saman olíunni, hunangi, cumin og koriander.
Þegar gulræturnar hafa kólnað eru þær settar í matvinnsluvél ásamt olíublöndunni, sítrónu- og appelsínusafa og tahini. Bragðbætið með salti, pipar, cumin og koriander.
Laxasalat
1 stór sæt kartafla eða tvær meðalstórar
500 g lax, beinhreinsaður
1 poki gott salat
ristaðar pekanhnetur
sítróna
fetaostur
salt og nýmalaður pipar
tímían
ferskt dill
ólífuolía
smjör
Afhýðið kartöfluna og skerið í litla bita, kryddið til með salti og pipar og leggið í eldfast mót. Hellið smá olíu yfir og bakið í ofni við 180°C í 30 – 35 mínútur eða þar til þær eru mjúkar í gegn.
Skerið laxinn í jafn stóra bita. Hitið olíu á pönnu, steikið laxinn í 2 – 3 mínútur á hvorri hlið. Kryddið til með salti, pipar og tímían. Þegar það eru ca. 2 mínútur eftir af eldunartímanum er gott að bæta smjörklípu út á pönnuna.
Þegar kartöflurnar eru tilbúnar þá dreifið þið smátt söxuðu dilli yfir þær og kreistið smá sítrónusafa yfir í lokin.
Blandið spínati, kartöflum, laxi, fetaosti og pekanhnetum vel saman í skál og berið fram.
Spanakopita
200 gr. filo deig
500 gr. spínat
250 gr. blaðlaukur
1 laukur
150 gr. fetaostur, mulinn
2 egg
salt
Blaðlaukurinn skorinn í sneiðar og laukurinn saxaður smátt. Steikt í olíu þar til mjúkt. Spínatið sett á pönnuna og steikt áfram í nokkrar mínútur eða þar til það er eldað. Eggin og fetaosturinn hrært saman ásamt salti og spínatblöndunni blandað saman við. Filo deigs arkirnar penslaðar með olíu og 3/4 settar í botninn á eldföstu móti, látið deigið ná vel yfir hliðarnar. Fyllingin sett í mótið og afgangurinn af deiginu settur yfir. Hliðarnar brotnar yfir og bakað við 200° í um 45 mínútur.
Ítölsk baunasúpa
2 dósir cannelini baunir
2 kartöflur
1 gulrót
1 laukur
1 hvítlauksrif
½ líter vatn
1 grænmetisteningur
3 matsk. olía
Salt og pipar
Laukurinn saxaður, gulrót og kartöflur rifið á rifjárni. Mýkt í olíu ásamt hvítlauknum. Vatni og grænmetiskrafti bætt út í og soðið í 15 mínútur.
Súpan maukuð og baununum síðan bætt út í. Soðið áfram í 15 mínútur
Borið fram með basil, parmesan og chili flögum eða góðri pestó sósu.
Panna cotta með hindberjum
1 líter rjómi
2 vanillustangir
3 blöð matarlím
125 ml. mjólk
125 gr. flórsykur
6 tesk. vodki
Hindberjasósa:
300 gr. hindber
3 matsk. flórsykur
750 ml. af rjómanum sett í pott ásamt klofnum vanillustöngunum og soðið niður um þriðjung. Fræin skafin innan úr vanillustöngunum og blandað saman við rjómann.
Matarlímið er lagt í bleyti í mjólkinni í 15 mínútur. Tekið úr og mjólkin hituð að suðu. Matarlímið sett saman við og hrært þar til það hefur bráðnað. Blandað saman við heitan rjómann og blandan látin kólna. Afgangurinn af rjómanum er þeyttur ásamt flórsykrinum og blandað varlega saman við rjómablönduna þegar hún hefur kólnað.
Hellt í lítil form og látið stífna í ísskáp í a.m.k. 2 klukkustundir.
Hindberin sett í mixara og maukuð ásamt 3 matsk. af flórsykri.
Búðingunum er hvolft á diska, einni teskeið af vodka hellt yfir hvern þeirra og borið fram með hindberjasósunni.
Carrot Cake Martini
1 hluti gulrótasafi
1 hluti sykursíróp
1 hluti vanilluvodki
1 hluti advocat
Kanill á hnífsoddi
3 - 4 dropar angostura bitters
Hrist með klökum
Ofan á:
Þunnt lag af léttþeyttum rjóma, ennþá fljótandi.
Kanil stráð yfir









No comments:
Post a Comment