Tuesday, February 23, 2016

Febrúarklúbbur hjá Gerði 2016



Gullostur með karrý og mangó chutney
Gullostur
Mangó chutney 
Karrý 
Pistasíuhnetur eða aðrar hnetur eftir smekk 

1. Ofninn hitaður í 140°C 
2. Osturinn settur á disk, sem þolir hita, og karrý dreift yfir allan ostinn 
3. Mangó chutney hellt yfir ostinn 
4. Hnetur – aðeins muldar – settar ofan á 
5. Hitað í ofninum í u.þ.b. 10 mínútur



Gráðostabaka
Gráðostabökuna er hægt að gera fyrr um daginn og velgja í ofni eða örbylgjuofni áður en hún er borin fram.

Botn
250 g hveiti
150 g mjúkt smjör
½ tsk salt
1 tsk basil
4 msk vatn

Fylling
450 g spínat
200 g gráðostur
4 egg
2½ dl rjómi
1 tsk svartur pipar
100 g furuhnetur

Botn
1. Öllu hráefni hnoðað saman og geymt smástund í kæli
2. Flatt út í pæform og pikkað í botninn

Fylling
3. Ofninn hitaður í 200°C (blástur með undirhita eða bara blástur)
4. Spínat látið þiðna, kreist og sett á botninn
5. Gráðostur mulinn ofan á
6. Egg, rjómi og svartur pipar þeytt saman
7. Furuhnetum stráð yfir
8. Bakað í ca. 40 mínútur

Bakan geymist í kæli og er hinn besti matur daginn eftir



Kóngssveppahorn
Upplagt er að laga fyllinguna áður en einnig er hægt að útbúa hornin einhverju áður, geyma í kæli og baka rétt áður en þau eru borin fram.

1 pakki Findus smjördeig – 5 plötur
50 g þurrkaðir kóngssveppir – klipptir í litla bita
60 g smjör
25 g rjómaostur (Philadelphia)
1-2 dl mjólk
5 ml soya
1-2 dl rjómi
Maizena sósujafnari (dökkur)
Salt og hvítur pipar

1. Sveppirnir látnir malla í smjörinu við vægan hita, eða þangað til þeir taka lit. Hrært í annað slagið – mega ekki brenna
2. Rjómaosti bætt í – mjólk og rjóma bætt í smám saman – sem og soyasósu. Þykkt með maizena. Saltað og piprað eftir smekk
3. Hver smjördeigsplata er skorin í tvennt og flött út ca. 12-13 cm á kant
4. Fylling sett á helminginn og brotið í þríhyrning, klemmt saman með gaffli á köntum. Má gjarnan pensla kantana með eggjahvítu áður en tíglarnir eru brotnir saman
5. Penslað með eggi og bakað í 200°C ofni í ca. 20 mínútur eða þar til hornin eru orðin fallega brún








Kjúklingasúpa með hnetusmjöri og rauðu karrý
1 paprika, skorin í teninga
1 laukur, skorinn í teninga
1 msk engifer, rifið
2 -3 msk rautt karrýmauk (ég notaði Blue dragon red curry paste)
2 dósir kókosmjólk (ég notaði Blue dragon coconut milk)
500 ml kjúklingakraftur (3 kjúklingateningar leystir upp í 500 ml heitu vatni)
2 msk fiskisósa (ég notaði Blue dragon fish sauce)
2 msk púðusykur
2 msk hnetusmjör
1-2 dl grænar baunir, frosnar (má sleppa)
3 kjúklingabringur, skornar í teninga og steiktar á pönnu
1 límóna

Til skrauts
Saxaðar salthnetur
Límónusneiðar
Kóríander
Hrísgrjón, elduð (má nota núðlur) Ég notaði gríska jógurt

1. Léttsteikið lauk, papriku og bætið engifer saman við.
2. Bætið rauðu karrý, kókosmjólk, kjúklingakrafti, fiskisósu, púðursykri, hnetusmjöri og baununum saman við og hrærið vel í. Leyfið súpunni að malla við lágan hita í 45 mínútur eða eftir því sem tíminn leyfir.
3. Kreistið safa úr einni límónu út í og bætið einnig kjúklingakjötinu saman við. Smakkið hana til og fyrir þá sem vilja hafa súpuna sterka má bæta 1-2 tsk af minced hot chilli út í.
4. Setjið súpuna í skálar og toppið með soðnum hrísgrjónum/núðlum, söxuðum salthnetum, límónusneiðum og jafnvel kóríander.



Frönsk súkkulaðikaka
1 ¼ dl sterkt kaffi
200 g sykur
250 g suðusúkkulaði (konsum)
225 g smjör
4 egg

Sjóðið kaffi og sykur saman í potti þar til það verður að sírópi, bætið smjörinu og súkkulaðinu út í sírópið á meðan það er heitt og latið bráðna. Kælið aðeins eða þar til blandan verður fingurvolg. Þeytið eggin saman við súkkulaðiblönduna, eitt í senn. 

Smyrjið 24sm lausbotna tertumót og stráið hveiti á botn þess og barma. Hellið deiginu í og bakið við 170°C í 60-70 mínútur. 

Kakan er blaut og best er að láta hana standa yfir nótt.



Sítrónupavlovur
3  stórar eggjahvítur
2 dl sykur
1 tsk borðedik

Hitið ofninn í 130 gráður Stífþeytið eggjahvítur, edik og 1 dl af sykri, bætið síðan öðrum dl af sykri við.   Breiðið úr marengsinum á bökunarpappír (18-24 eftir smekk). Mér finnst ágætt að hafa kantana svolítið hærri.  Bakið í 1 klst og 10 mín. Slökkvið á ofninum og leyfið pavlovunni að kólna í ofninum.

Sítrónukrem:
3 eggjarauður
3/4 dl sykur
1 sítróna (nota börkinn af heilli sítrónu og safann af hálfri sítrónu)

Hrærið saman eggjarauðurnar, sykurinn, sítrónubörkinn og safann í skál yfir vatnsbaði þangað til blandan þykknar. Leyfið kreminu að kólna áður en það er sett á marengsbotninn.








No comments:

Post a Comment