Mjög hollt snakk, Multigrain, (fæst í KOSTI) sem er gert úr hörfræjum, sólblómafræjum og brúnum hrísgrjónum. Sexkantar flögur fremur stórar - gott að smyrja með smurosti og strá graslauk yfir eða með þessarri í ídýfu:
2 dósir sýrður rjómi
2 dl sweet chilisósa
Blandað saman og borið fram með Multigrain snakkinu
Súper hollt salsa, sett í Tostios Scoops
Setjið þessa salsasósu í þessar snakk"skálar“ Tostios Scoops (einungis 7% fita) sem fást í Kosti og Hagkaup.
1 stór dós kotasæla
8 tómatar
1 rauðlaukur, saxaður smátt
1/2 lime
ferskt kóríander, saxað fremur smátt
1 rautt chili, saxað smátt
salt og pipar
Skerið tómatana í helminga og hreinsið úr þeim aldinkjötið, það er ekki notað. Skerið skelina af tómötunum smátt. Kotasælu, tómötum, chili, lauk og kóríander blandað saman. Smakkað til með limesafa, salti og pipar. Salsað látið brjóta sig í ísskáp í 15-30 mínútur áður en það er borið fram.
Spínatsalat með jarðaberjum
Spínat + annað salatefni
jarðaber, skorin í bita
fetaostur í olíu - notaði reyndar mjúkar mosarella kúlur og reif þær yfir
ristaðar valhnetur - notaði ristaðar furuhnetur og setti olíu og Balsamic creme/síróp/þykkni
Spínatið er lagt á disk. Jarðaberjunum er svo dreift ofan á spínatið ásamt fetaostinum (smá olía með). Því næst eru valhneturnar saxaðar gróft og þær þurrristaðar á pönnu á eftirfarandi hátt. Panna hituð og valhneturnar ristaðar á pönnunni við fremur háan hita í nokkrar mínútur þar til þær hafa náð góðri ristun, hrært í þeim stöðugt á meðan til þess að þær brenni ekki. Þegar hneturnar hafa kólnað dálítið er þeim að lokum dreift yfir salatið.
Andarsalat
Andarsalatið var mix af þessum tveimur:
Andarsalatið var mix af þessum tveimur:
Aromatic önd í pönnuköku með vorlauk og agúrku
Hægt að kaupa kassa í Kosti með efni í þennan rétt - þ.e öndinni eldaðri + pönnukökur +sósu) – vantar bara vorlauk, gúrku, og e.t.v graslauk.
Þá þarf bara að setja öndina í ofn í 30-35 mín. svo hún verði crispy.
Svo rífa öndina niður/skera í lengjur, smyrja pönnukökur með sósunni. Leggja inn í pönnukökurnar öndina, lengjur af gúrku, vorlauk og graslauk og brjóta saman í vefju og svo velgja í ofninum. (það stendur á pakkanum að það eigi að hita pönnsurnar fyrst en þegar eg gerði það urðu þær bara harðar og ekki hægt að vefja þeim upp - kannske of heitt/lengi í ofninum - þarf ekki - breytir engu um bragðið) - en vefjurnar skal bera fram volgar
Tælensk gulrótarsúpa - uppskrift f ca. 3-4
500 g gulrætur
1 gulur laukur
3 hvítlauksrif
1 rautt chili
2 cm ferskt engifer
400 ml kókosmjólk (1 dós)
6 dl vatn
salt & pipar
olía til steikingar
ferskt kóríander (má sleppa)
Gulrætur flysjaðar og skornar í ca. 1 cm sneiðar. Laukur og hvítlaukur saxaður fínt. Chili fræhreinsað og saxað smátt. Olía sett í pott og laukur, hvítlaukur og chili steikt þar til laukurinn verður mjúkur og glær. Þá er gulrótum bætt út í ásamt vatninu Suðan látin koma upp og súpan látin malla þar til gulræturnar verða mjúkar. (ég forsauð reyndar gulræturnar þar til þær vora mjúkar undir tönn en ekki fullsoðnar). Þá er potturinn tekinn af hellunni og súpan maukuð (auðveldast með töfrasprota beint í pottinn en líka hægt að nota matvinnsluvél). Þá er kókosmjólk bætt út í ásamt engifer sem er rifinn með rifjárni. Súpan látin ná suðu og malla í dálitla stund, kryddað vel með salti og pipar.
Gott er að bera fram súpuna með grófsöxuðum kóríander. ATH – mér fannst súpan ekki nógu kraftmikil svona, - sleppti korianden v/Gerðar - svo eg bætti í hana ýmsum tailenskum kryddum sem eru t.d. notað í Tom Yum súpur.
Brieostabaka með mango chutney
Botn:
3 dl hveiti
125 gr smjör (kalt, skorið niður í litla bita)
1 msk kalt vatn
1/2 dl sólblómafræ (má sleppa)
Fylling:
400g brie ostur (ég notaði einn brie ost og einn gullost)
U.þ.b. 1.5 dl mango chutney
3 egg
2 1/2 dl rjómi (má nota matargerðarjóma)
salt og pipar
Hveiti og smjör sett í matvinnsluvél þar til það verður að deigi. Vatni bætt við og hrært í smástund í viðbót. Sólblómafræjum bætt við í lokin, gott að láta þau ekki myljast of mikið niður. Deginu þrýst niður á botninn í bökuformi og upp með hliðunum, kælt í 30 mínútur. Botninn bakaður við 225 gráður í 10 mínútur.
Brie ostur skorinn í sneiðar og raðað ofan á botninn. Helmingurinn af mango chutney smurt ofan á ostinn (ég mældi ekki magnið af mango chutneyið, smurði því bara vel á!). Eggjum, rjóma, salt og pipar pískað saman. Helmingnum af eggjahrærunni helt ofan á bökufyllinguna. Afgangnum af brie osti raðað yfir ásamt mango chutney og að lokum er restinni af eggjablöndunni hellt yfir. Lækkið ofnin niður í 200 gráður og bakið í 30-40 mínútur eða þar til bakan er tilbúin. Setjið álpappír yfir bökuna ef hún dökknar of mikið.
Balsamedik-sírópi drippað yfir bökuna að vild (notaði Balsamic creme/síróp/þykkni beint úr flöskunni - sem gerir sama gagn of neðangreind samsuða - ef það er þykkt og gott
2 dl balsamedik
1 msk hunang
1 hvítlauksrif
Hráefninu blandað saman í lítinn pott og látið krauma þar til blandan hefur soðið niður um helming og hefur þykknað. Hvítlauksrifið fjarlægt, blandan kæld, hellt yfir bökuna.
Snickerskaka
Í raun er þetta sænsk „kladdkaka“ með hnetu- og súkkulaðikremi
Uppskrift:
4 egg
4,5 dl sykur
2 tsk vanillusykur
8 msk kakó
3 dl hveiti
200 g smjör, brætt
100 g Pipp súkkulaði með karamellu (má sleppa)
Krem:
2 dl salthnetur
200 g rjómasúkkulaði
Ofninn hitaður í 175 gráður, undir- og yfirhita, og ca 26 cm smelluform smurt að innan. Smjörið brætt og látið kólna dálítið. Egg og sykur þeytt saman. Því næst er vanillusykri, kakói, bræddu smjöri og hveiti hrært út í.
Deiginu er hellt í bökunarformið og pippmolunum þrýst ofan í deigið hér og þar. Því næst er kakan bökuð í miðjum ofni við 175 gráður (undir- og yfirhita) í 30 til 40 mínútur, kakan á að vera blaut í miðjunni. Athugið að hitinn er gefinn upp fyrir undir- og yfirhita, sami hiti á blæstri er í raun hærri hiti).
Ofan á:
Rjómasúkkulaðið brætt yfir vatnsbaði og hnetunum bætt út í þegar súkkulaðið hefur bráðnað. Þegar kakan er komin úr ofninum og hefur kólnað dálítið er kreminu hellt yfir kökuna og hún kæld í minnst tvo tíma áður en hún er borin fram með þeyttum rjóma. kakan á að vera blaut í miðjunni.
NB - Hafði hana í 30 mínútur í ofninum - en hjá sumum hefur kakan verið of blaut eftir 30 mínútur – það þarf að finna út rétta tímann fyrir hvern og einn ofn og fylgjast vel með kökunni.
No comments:
Post a Comment