Nýja bókin Íslensk ofurfæða - villt og tamin eftir Áslaugu Snorradóttur er mjög skemmtileg uppspretta litríkra og spennandi samsetninga, mest úr grænmeti o.fl. skrítnu og skemmtilegu.
Flottar myndir í bókinni gefa lífinu - og matnum lit - og hugmyndir af samsetningum. Notaði þó ekki mikið af uppskriftum úr bókinni - mest haustblöð Gestgjafans.
Sílexíu-cosmopolitian
Freyðivín (fremur sætt) með dash af trönuberjasafa + klaka
Forsmakk - glutenfree kex og fræ-snack bitar (Heilsuhúsið)
Ofan á er sett eftirfarandi:
- frönsk anda-(ekki lifrar)kæfa í krukku (keypt í Champagne -héraðinu)
- gulrótapestó (heimagert, sjá uppskrift)
- guaqamole mauk með paprikubitum (keypt í Hagkaup)
Gulrótapestó
250 g. rifnar gulrætur
1 hvítlauksgeiri
1 dl cashewhnetur
1 dl parmesan
3 msk söxuð steinselja
0,5 tsk salt
4-5 msk ólívuolía
Rífið gulrætur. Setjið hnetur, steinselju, hvítlauk og parmesan í matvinnsluvél og hakkið saman. Gulræturnar eru soðnar í örbylgju með smá vatni. Blandaðu þessu saman við olíuna og saltið.
Rauðkálssalat með blómkálsbuffi, litlum gulrótum með kúmen, litlum gljáðum maís
sem er sett ofan á /til hliðar við salatið
Rauðkálssalat
350 g niðursneitt íslenskt rauðkál
Blandað salat - rucola - kínakál - blómkálsbitar
kokkteiltómatar
paprikukurl
rifinn fetaostur
25 g pekanhnetukjarnar (eða valhnetukjarnar), grófmuldir
1 msk möndluflögur
4 msk góð ólífuolía
1 msk balsamedik/balsamic-creme
nýmalaður pipar
salt
Gulrætur gljáðar og góðar
Gulrætur - fremur smáar - eru léttsoðnar - svo gljáðar í olíu á pönnu - kúmeni stráð yfir + salt
Blómkálsbuff - ca 10 stk
1/2 -1 blómkálshaus skorinn í litla bita 3-4 msk olía
1 msk Arabískar nætur - krydd frá Pottagöldrum
2 tsk gróft sjávarsalt
2 hvítlaukageirar, pressaðir
1 dl brauðrasp
1dl rifinn ostur
1/2 - 2 dl mulinn fetaostur
2 egg
safi úr 1 sítrónu
2-4 msk olía til steikingatr
Sjóðið blómkálið þar til mjúkt í gegn. Setjið það svo í matarvinnsluvél og hakkið smátt en ekki í mauk - betra að stappa bara með gaffli svo ekki verði algjört mauk. Blandið saman við hræruna öllu öðru hráefni og bragðbætið með salti, pipar og sítrónusafa e.smekk. Látið standa 20 mín og búið svo til 10 lítið buff. Hitið olíu á pönnu og steikið við meðalhita þar elduð í gegn. Notið Sólskinssósu með sem fæst í öllum stórmörkuðum + í Gló - passar vel með mörgum grænmetisréttum
Bláberjabaka - ekkert sérlega góð...
Botn:
50 gr. ósaltað smjör
3 msk agave síróp
1 egg
1 bolli spelt
3/4 tksk vínsteinslyftiduft
Smyrjið form sem er 23-25 sm. Hrærið smjör og síróp í matvinnsluvél eða með höndum, setjð eggin utí og blandið vel. Spelt og lyftiduft sett útí svo úr verði mjúkt deig. Klæðið botn og hliðar formsins með deiginu. Geymið í ísskáp meðan fyllingin er gerð
Fylling:
2 egg
2 1/2 tsk algave-síróp
1 bolli AB-mjólk
3 msk sítrónusafi
1 tsk vanilludropar
2 bollar bláber - fersk eða frosin
Allt nema bláberin hrært vel samna í vél. Berin sett á botnin og blöndunni hellt varlega yfir. Bakað í 50-60 mín við 175. Kælt vel
Rófusúpa og fjögurrahausasúpa - blandað saman
Gerði rófusúpuna, en fannst hún svo ekki nógu spennandi, svo ég bætti í raun öllum góðum hráefnum úr 4ra hausa súpunni við, nema setti rifnu hausana ekki útí - heldur bar þá með súpunni, svo hver og einn gat fengið sér rifið rauðkál, hvítkál, rauðrófu eða rófu útá - sjá mynd
Rófusúpa
900 gr. rófur
4-5 msk olífuolía
150 gr. laukur
100 gr. sellerí
1 litri grænmetissoð (sjá uppskrift af því) - eða kjúklingasoð
2 tsk cumminfræ
1-2 tsk túrmerik
1/4-1/2 tsk cayennepipar
2-3 lárviðarlauf
hvitur pipar
sjávarsalt
200 ml rjómi ef vill
Laukur og sellerí skorið smátt og sett í pott + olífuolía og smá salt og látið glærast við meðalhita. Þá er smátt söxuðum lauk og cumminfræjum bætt við og smátt skornum rófunum. Svo er kraftinum bætt útí og lárviðarlaufum og kryddum. LLátið malla þar til meyrt. Þá eru lárviðarlaufin veidd uppúr og súpan maukuð. Má krydda meira ef vill -ég setti t.d. bæði yellow curry paste og green curry paste en það var of mikið/súpan varð of sterk, svo varist það. Rjóminn er settur síðast ef vill
Úr Fjögurrahausasúpunni notaði ég þetta:
6 rauðar paprikur+6 hvítlauksrif+6 sm blaðlaukur sem var saxað mjög smátt og sett útí og látið malla með. Maukaðist svo saman við að lokum.
4 litlir hausar rófa+rauðrófa+hvítkál+ rauðkál rifið hæfilega, sjá mynd og borið með
Grænmetissoð Þetta soð er mjög góður grunnur í margar súpur - notið endilega afskurð og afganga og "þreytt " grænmeti til að gera svona soð - má frysta skammta af þessu og grípa til síðar. Mikill munur eða nota msg-mengaða grænmetiskrafta/teninga!
3 gulrætur
3 laukar
3 selleristilkar
1 rófa
1 heill hvitlaukur - óflysjaður og skorinn í tvennt
1 msk tómatmauk
2 msk smjör
1 msk svört piparkorn
sjávarsalt
lárviðarlauf
vatn svo fljóti yfir
Brúnið grænmetið og tómatmaukið í smjörinu. Hellið vatni yfir og kryddið Soðið í 40-50 mín og síið svo.
Gulrótarostakaka þessi er frá Cheesecake Factory - þarna er tvinnað saman gulrótarkökudeigi og ostaköku
200 g Digestive kex, mulið smátt
100 g smjör, brætt
1 msk sykur
600 g Philadelphia rjómaostur
1.5 dl sykur
2 msk púðursykur
3 egg
60 ml rjómi
2 msk kartöflumjöl
2 tsk vanillusykur
1 tsk límónusafi (lime)
1 tsk kanill
150 g rifnar gulrætur
Ofan á kökuna:
8 Lu kanilkexkökur eða Digestive kex (ca. 100 g), mulið smátt
2 msk púðursykur
1 tsk kanill
60 g smjör, kalt
Ofn stilltur á 175 gráður við undir- og yfirhita. Smjör brætt og kex mulið smátt og því blandað saman við smjörið. Sett í smurt bökunarform með lausum botni, blöndunni þrýst ofan í botninn og aðeins upp í hliðar á forminu. Botnin bakaður í 10 mínútur og látinn kólna.
Rjómaostur, sykur og púðursykur sett í skál og þeytt þar til að blandan verður kremkennd. Eggjum bætt við, einu í senn, þeytt vel á milli en þó ekki mjög lengi. Rjómanum smátt og smátt bætt við og þeytt á meðan. Kartöflumjöli, vanillusykri, límonusafa og kanill er því næst bætt út og hrært saman við blönduna. Að síðustu er rifnu gulrótunum bætt út í og blandað saman við deigið með sleikju. Blöndunni hellt yfir kexbotninn og bakað við 175 gráður í 45 mínútur. Á meðan er hráefnunum ofan á kökuna hnoðað saman í höndunum. Þegar 45 mínútur eru liðnar af bökunartímanum er kakan tekin úr ofninum, deiginu dreift yfir kökuna og hún sett aftur inn í ofn í ca. 8-10 mínútur. Að því loknu er kakan látin kólna og sett að síðustu inn í ísskáp í nokkra tíma, helst yfir nóttu, áður en hún er borin fram.
Sitrónukrem ofnaá + sykraðar sítrónusneiðar til skrauts, sjá mynd (bætti þessu við til að hún liti betur út)
75 gr. mjúkt smjö
175 gr. flórsykur
2 tsk sítrónusafi
rifinn börkur af 1 sítrónu.
Hrærið saman þar til létt og ljóst
Sykraður sitrónubörkur
Skerið sítrónur í sneiðar og svo í bita og veltið þeim uppúr hrásykri.Raðið á kantinn á kökunni
Borið fram með blöndu af þeyttum rjóma og grískri jógúrt
Frönsk vín - flest frá Frakklandsferð sumarsins
No comments:
Post a Comment