Sunday, April 1, 2018

Febrúarklúbbur hjá Fanney 2018


Dukkah
1 bolli blandaðar hnetur
1/2 bolli sesamfræ
2 matsk. korianderfræ
2 matsk. cuminfræ
1 tesk. sjávarsalt

Ristið hnetur á pönnu þar til þær hafa brúnast lítillega. Setjið í matvinnsluvél og saxið gróflega. Ristið sesamfræin og blandið þeim saman við. Malið kryddin og bætið út í hnetublönduna.



Gambas Pil Pil
400 gr. risarækja
1 dl. ólífuolía
4 hvítlauksrif
1/2 rautt chilli

Chilli saxað smátt og hvítlaukur skorinn í sneiðar. Olían hituð á pönnu og rækjurnar settar á pönnuna. Chilli og hvítlaukur sett út á og steikt þar til rækjurnar eru eldaðar í gegn.



Blaðlauksbaka með cheddar osti
Botn:
1 bolli hveiti
80 gr. smjör
3 matsk. ab mjólk eða súrmjólk
1/2 tesk. salt

Fylling:
2 blaðlaukar
50 gr. smjör
4 egg
1 dl. kotasæla
1 dl. rjómi
50 gr. rifinn cheddar ostur
salt og pipar

Mylsna ofan á:
75 gr. rifinn cheddar ostur
25. gr. brauðmylsna
25 gr. heslihnetuflögur

Hnoðið saman hveiti smjör og ab mjólk - gott er að gera þetta í hrærivél eða matvinnsluvél. Fletjið deigið út í bökudisk og bakið undir fargi við 175° í 30 mínútur.

Skerið blaðlauk í sneiðar og steikið í smjörinu við vægan hita þar til blaðlaukurinn er mjúkur. Hrærið saman eggjum, rjóma, kotasælu og rifnum cheddar osti. Bragðbætið með salti og pipar og blandið blaðlauknum saman við. Setjið fyllinguna í bökubotninn og bakið við 175° í 20 mínútur.

Blandið saman rifnum cheddar osti, brauðmylsnu og heslihnetuflögum og dreifið yfir bökuna. Bakið áfram við 175° í 20 mínútur. 



Kúrbítssúpa með gráðosti
2 matsk. olífuolía
1 matsk. smjör
1 laukur skorinn gróft
900 gr. kúrbítur skorinn í bita
1 tesk. oregano
600 ml. af grænmetissoð
115 gr. gráðostur
300 ml. rjómi
salt og pipar

Hitið olíuna og smjörið í potti og steikið laukinn í 5 mín eða þar til hann er mjúkur en ekki brúnn. Bætið við kúrbít, oregano, salti og pipar og eldið við miðlungshita í 10 mínútur. Bætið soðinu við og látið sjóða við vægan hita í 30 mínútur, hrærið í annað slagið. 

Setjið gráðostinn út í súpuna og látið hann bráðna. Maukið þá súpuna með töfrasprota og bætið að lokum rjómanum út í. Hitið að suðu og bragðbætið með salti og pipar ef þarf.

Súkkulaðikaka með Daimrjóma
Kakan:
250 gr. suðusúkkulaði
180 gr. smjör
2 tesk. Nescafeduft hrært út í einni matsk. af sjóðandi vatni
2 dl. sykur
4 egg
2 tesk. vanillusykur
1/2 tesk. lyftiduft
1/2 dl. hveiti

Súkkulaðið brotið niður í pott og brætt ásamt smjörinu við vægan hita. Potturinn tekinn af hellunni og blandan látin kólna lítillega. Neskaffinu blandað saman við  ásamt sykri og eggjum og hrært vel þar til blandan er slétt. Hveiti, vanillusykri og lyftidufti hrært varlega saman við. Deiginu er hellt í smurt 24 sm. bökunarform og bakað við 175 gráður í ca. 35 mínútur. Kakan má gjarna vera örlítið blaut í miðjunni.

Daimrjómi:
3 dl rjómi
1/2 matsk. kakó
1 1/2 matsk. flórsykur
1 tesk vanillusykur
100 gr. Daim súkkluaði

Rjóminn er þeyttur ásamt kakói, vanillusykri og flórsykri. Súkkulaðið er saxað og bætt út í þeytta rjómann. Daimrjómanum er dreift yfir kökuna þegar hún hefur kólnað alveg




No comments:

Post a Comment