Humarvefja í hvítlaukssmjöri
Magnið, það er fjöldi humarhala, brauð og annað, fer eftir stærð halanna og fjölda þeirra sem í mat eru; sömuleiðis hvort um er að ræða forrétt eða aðalrétt.
- Franskbrauð
- Humar, skelflettur
- Smjör
- Hvítlaukur
- Steinselja, fersk
- Sítrónupipar
Bræðið smjörið, pressið hvítlaukinn og blandið saman ásamt steinseljunni. Skerið skorpuna af brauðinu og fletjið það út með kökukefli báðu megin svo loftið fari úr því og það sé einfaldara að vefja brauðinu utanum humarinn. Hreinsið humarinn og leggið hann á brauðið. Kryddið með sítrónupiparnum. Vefjið brauðinu utan um humarinn og veltið rúllunum upp úr hvítlauskssmjörinu. Bakið í ofni við 200°C í 10-15 mín. Best að hafa rúllurnar á grind inni í ofninum svo þær bakist jafnt og verði ekki blautar að neðan.
Prófa má að strá rifnum osti yfir rúllurnar og það kemur mjög vel út. Flott að strá steinselju yfir þegar tekið er úr ofninum. Borið fram á ruccola – beði
Einstaklega gott með léttu salati og hvítlaukssósu.
Kræklingasalat
Þvoið/burstið skelfiskinn vel og hendið þeim sem voru opnir. Sjóðið kræklinginn í hvítvíni þar til skeljar hafa opnast –hendið lokuðum skeljum
Hristi saman 2 msk af ólífuolíu, safa ur 1/2 sítrónu, pipar og salt og hellti yfir. Lét þetta standa í hálftíma
Ég reif niður salatblöð og setti í skál ásamt nokkrum basilíkublöðum, sundurskornum kirsiberjatómötum og einni teskeið af kapers sem ég hafði skolað úr köldu vatni.
Stakk svo skeljunum ofan í salatið og hellti maríneringunni yfir.
Rauðrófu, melónu- og mangósalat með mosarellakúlum
1 bolli rauðrófur (má nota úr dós)
1 bolli melónur – 2-3 tegundir
1 bolli mango
1 bolli mosarellakúlur
Má setja smá hunang og sítrónusafa ef vill
Brún marengs a la Svava (púðursykurmarengs)
4 eggjahvítur stífþeyttar
250 gr. púðursykur
50 gr. kartöflumjöl
- Bakað við undirhita – 2 botnar
Á milli er sett:
½ litri rjómi
1-2 epli flysjuð og smáttskorin
100 gr. suðusúkkulaði smáttskorið
SETJIÐ BOTNANA SAMAN – OG BÍÐIÐ Í 4 KLST MINNST










No comments:
Post a Comment