Sveppa, límónu og kús kús baka
3 msk smjör
1-2 dl valhnetur, grófmuldar
3 hvítlauksrif, smátt söxuð
½-1 chili, smátt saxað
500 gr sveppir (villisveppir ef vill)
1 límóna, skorin í smá báta
2-3 msk púðursykur
3 msk balsamikedik
3 msk safi úr límónu
Salt og nýmalaður pipar
Htið smjörið á pönnu og kraumið valhnetur, hvítlauk og chili. Bætið sveppum út
í og kraumið í 3-5 mín. Bætið síðan restinni af hráefnunum saman við og hitið í
2-3 mín. - Kælið
Sjóðið kús kús eftir leiðbeiningu (bætið við grænmetissoði). - Kælið
2 egg
3-4 blöð smjördeig.
Hrærið kús kúsið og sveppablönduna saman, bætið eggjum við.
Fletjið út smjördeigið og setjið í eldfast mót. Setjið sveppablönduna í mótið.
Bakið við 180°C í uþb 30 mín eða þar til deigið bakast.
Grænmetis-tartalettur með Camembert osti
15-20 tartalettur
100 gr grænar linsubaunir
1 laukur, smátt saxaður
2 msk olía
1 lítill kúrbítur
3 msk tómatmauk
3 dl vatn
1 dós saxaðir tómatar
2 hvítlauksrif, söxuð
1 grænmetisteningur
1 tsk salt
1 tsk Taco Seasoning Mix
Svartur pipar
100 gr rjómaostur
2-3 msk sóskujafnari (ef þarf)
1 Camember ostur
Setjið linsubaunir í sigti og skolið vel. Steikið laukinn í olíu í potti við vægan hita
þar til hann veðrur mjúkur. Skerið kúrbítinn í litla bita og hrærið saman við
laukinn. Bætið vatni, linsubaunum, tómötum, hvítlauk, grænmetistening og
kryddi saman við og sjóðið við vægan hita í 30 mín. Bætið þá rjómaostinum
saman við og sjóðið í 5 mín. Þykkið sósuna með sósujafnara og kælið fyllinguna.
Setjið msk af fyllingu í hverja tartalettu og Camembert sneið ofan á. Bakið við
160°C þar til osturinn er bráðnaður.
Vichyssoise – blaðlauks- og kartöflusúpa (Fyrir 6-8)
4 msk smjör
1 msk ólífuolía
4 stórir blaðlaukar, rúml. 1 kg, hreinsaðir og skornir í þunnar sneiðar
2-3 stórar kartöflur (um 400 gr) skrældar og skornar smátt
600-700 ml kjúklingasoð + grænmetissoð
3 dl rjómi
Salt og pipar
Múskat
Graslaukur eða steinselja söxuð og stráð yfir
Hitið smjör og ólífuolíu í stórum potti við lágan hita. Setjið blaðlaukinn út í og
steikið í 5 mín., passið að laukurinn taki ekki á sig lit. Bætið kartöflunum saman
við og steikið áfram í 2 mín. Hellið soði yfir og náið upp hægri suðu. Sjóðið í uþb
35 mín. Takið súpuna af hitanum, látið kólna og maukið. Passið að það séu
engir kekkir í súpunni, hún á að vera flauelsmjúk. – Setjið súpuna yfir lágan hita
og hrærið rjómanum saman við. Bragðbætið með múskati, salti og pipar.
Smakkið súpun og bragðbætið eftir smekk. Tilvalið að elda súpuna deginum
áður, verður bara betri.










No comments:
Post a Comment