Kúskús salat
6-8 vorlaukar sneiddir og ½ laukur eða 2 skalotlaukar, smátt saxaðir og steiktir í olíunni þar til fara að mýkjast. 2 saxaðir hvítlauksgeirar settir útí og steikt aðeins áfram.
300 gr spínat bætt í og steikt í 3-4 mín. eða þar til spínatið er orðið mjúkt. Hellt í sigti og látið drjúpa af blöndunni. Saxað gróft.
Blandað við 400 gr kotasælu, 1 ½-2 boxi fetaosti, 2-3 msk saxað dill, 2-3 msk söxuð steinselja og kúskús eftir smekk. Braðbætt með salti og pipar.
Rauðrófu- og appelsínusalat
1 rauðrófa, í bitum - má vera niðursoðin
1/2 rauðkálshaus í strimlum
2 vorlaukar eða 1 búnt graslaukur, skorinn í litla bita
Rucola salat - 2 hnefar
1 appelsína í bitum
¼ rauðlaukur, skorinn í þunna langa strimla
nokkrir kokkteiltómatar
nokkrar ólífur
3-4 sólþurrkaðir tómatar, skornir í langsum strimla
10 valhnetur, þurrristaðar á pönnu
1 Brie-ostur í bitum - eða Fetaostur
smá grænt krydd – t.d. ferskt basil eða ferskt kóríander eða....
Blandið öllu saman í skál, hellið dressingunni yfir salatið og endið á að klippa ferskt krydd yfir.
Dressing - sett í blandara:
1 1/2 dl lífræn ólífuolía
1 1/2 dl ferskur sítrónusafi
½ dl ferskur appelsínusafi
1 tsk sinnep
1 hvítlauksrif
2 vorlaukar - fínt saxaðir
1/2 búnt ferskt basil - smátt saxað
smá sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
Má líka sleppa dressingu og nota bara góða olíu og Balsamedik/glaze
Karrí- tómatsúpa (fyrir 4-6)
1 saxaður laukur og 2-3 marin hvítlauksrif
2-4 tsk karrý. Þetta er léttsteikt í olíu.
1 dós niðursoðnir tómatar sett útí og þetta maukað.
4 dl fiskisoð sett útí og látið krauma í 5-10 mín.
1 dós (400 gr) ferskjur skornar í mjög smáa bita og sett í súpuna ásamt safanum.
Peli af rjóma bætt útí og suðunni aðeins hleypt upp.
Gott að bæta rækjum eða kjúklingi í smáum bitum í en þarf ekki.
Marengs og snickers
Púðursykurmarengs:
3 stk eggjahvítur
150 gr púðursykur
80 gr sykur
Þeytið eggjahvítur og bætið báðum tegundum af sykri saman við. Þeytið þar til sykur er vel uppleystur, smyrjið út tvo botna á bökunarpappír (24 cm) og bakið við 150° í 40 mín.
500 ml rjómi þeyttur.
1 pakki með 4 litlum Snickers súkkulaðistykkjum (eða Mars eða annað gott súkkulaði) brytjað niður.
1 stór dós niðursoðnar perur (eða apríkósur). Perurnar þerraðar vel og skornar niður í bita.
1 marengsbotn (hvítur eða brúnn með púðursykri), mulinn niður.
Öllu blandað saman og sett í eldfast mót (mót sem þolir að fara í frysti). Fryst, tekið út einum til einum og hálfum tíma áður en á að bera fram.








No comments:
Post a Comment