Fiskisúpa
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 1 rauð paprika
- 1-2 msk smjör
- 8 dl vatn
- 2 fiskiteninga
- 400 g fiskur hvítur/bleikur gott að hafa bæði
- 2-3 dl rjómi
- 200 jöklasalat (skorið í strimla)
- 200 rifinn ostur
- 2 msk ferskt dill
Saxa lauk, hvítlauk, papriku og létt steikja í smjöri í stórum potti og bætið síðan vatni út í. Látið sjóða í smá stund við lágan hita og setjið fiskiteninga út í.
Næst er osturinn settur út í og látinn samlagast, síðan er rjóminn, jöklasalatið og fiskurinn settur út í. Látið bíða í ca. 10-15 mínútur eða þangað til fiskurinn er tilbúinn.
Saxið dill yfir og berið fram.
Botn:
- 1 1/4 hveiti
- 80 kalt smjör
- 1/2 bolli rifinn parmesan ostur
- 1 msk gott sinnep
- 2-3 msk ísvatn
Auka: 1/2 bolli rifinn parmesan ostur, seinna
Fylling:
- 1 msk olifuolía
- 30 g smjör
- 4 meðal stórir rauðlaukar, saxaðir
- 1 msk rauðvíns eða balsamik edik
- 2 tsk púðursykur
- 3 egg
- 1/2 bolli rjómi
Deig:
Hrærið saman hveiti, smjöri, sinnepi og parmesan í hrærivél/matvinsluvél. Bætið vatni saman við.
Gætið þess að hræra ekki of mikið. Geymið í kæli smá stund.
Fylling:
Hitið olíu og smjör á pönnu. Bætið söxuðum lauk út í og sjóðið í olíunni þar til hann er orðinn vel mjúkur án þess að vera brúnaður (tekur ca. 20-30 mín). Blandið ediki og sykri saman við og hrærið vel þangað til sykurinn er bráðinn.
Aðferð:
Fletjið deigið út í eldfast mót og pikkið deigið með gaffli. Smyrjið sinnepi yfir og dreifið 1/2 bolla af parnesan osti yfir og setjið síðan laukfyllinguna yfir.
Þeytið saman egg og rjóma og hellið yfir.
Bakið við 175 gráður í heitum ofni í ca. 40 mínútur.
Tómatar, gúrka, svartar ólifur og fetaostur
Kakan:
- 80 g döðlur, skornar niður
- 1/2 dl vatn
- 5 eggjahvítur
- 70 g döðlur, skornar niður
- 80 g möndluflögur, ristaðar á pönnu
- 80 g dökkt súkkulaði, saxað
Hitið ofninn í 150 gráður.
Sjóðið döðlur og vatn saman í nokkrar mínútur þannig að þær verða að mauki. Kælið. Þeyta eggjahvítur alveg stífar. Blandið eggjahvítunum saman við döðlumaukið í smá skömmtum. Blandð síðan saman súkkulaði, ristuðum möndluflögum og smátt söxuðum döðlum saman við blönduna. Hellið deiginu í smurt form eða notið pappírsklætt smelluform, 22 cm. Bakið í miðjum ofni í 20 mínútur. Kælið kökuna aðeins í forminu áður en hún er sett á disk.
Ofan á:
200 pekanhnetur
90 g hrásykur
3/4 rjómi
Ristið pekanhnetur í ofni eða pönnu. Sjóðið saman hrásykur og rjóma þannig að úr verði þykk karamella. Raðið hnetum yfir kökuna og dreifið sósunni yfir. Fallegt að skreyta með berjum.
Berið kökuna fram með þeyttum rjóma.








No comments:
Post a Comment