Sunday, March 28, 2021

Marsklúbbur hjá Fanney

 
Þeyttur ricotta ostur
200 gr. ricotta ostur
1 matsk. ólífuolía
1 tesk. sjávarsalt
1 tesk. svartur pipar

Ofan á:
1/2 matsk. ólífuolía
1/2 matsk. balsamedik
Örlítill svartur pipar

Setjið ricotta ost, ólífuolíu, salt og pipar í hrærivélarskál og þeytið saman þar til osturinn er silkimjúkur. Setjið ostinn í víða skál, sléttið yfirborðið og dreypið ólífuolíu og balsamediki yfir. Stráið að lokum örlitlum svörtum pipar yfir. Berið fram með brauði eða kexi.


Caprese baka
Botn:
1 bolli spelt eða hveiti
80 gr. smjör
1 matsk. sesamfræ
1 tesk. sjávarsalt
1/2 tesk. þurrkað basil
3 matsk. kalt vatn  

Fylling:
2 mozzarella kúlur
3-4 tómatar
ca. 20 basilblöð
3 egg
1 1/2 dl. rjómi
salt og svartur pipar

Hrærið saman allt sem á að fara í bökudeigið og fletjið út í bökudisk. Bakið botninn við 175° í 30 mínútur. Skerið mozzella ostinn og tómatana í sneiðar og raðið í bökubotninn. Stingið basil blöðunum inn á milli sneiðanna. Þeytið saman egg og rjóma og bragðbætið með salti og pipar. Hellið eggjablöndunni yfir tómatana og ostinn og bakið bökuna við 175° í 30 mínútur.

Panzanella
1 kg. vel þroskaðir tómatar
3 tesk. sjávarsalt
340 gr. súrdeigsbrauð (gjarna dagsgamalt)
1 1/2 dl. ólífuolía
1 rauðlaukur í þunnum sneiðum
1 hvítlauksrif
1/2 tesk. dijon sinnep
1 matsk. rauðvínsedik
1 matsk. balsamedik
1 búnt af ferskri basiliku
Salt og svartur pipar eftir smekk

Skerið tómatana í bita, setjið  í sigti yfir stórri skál og dreifið saltinu yfir. Látið standa í 20 mínútur. Skerið brauðið í teninga og setjið í eldfast mót. Takið 2 matskeiðar af ólífuolíunni og dreifið yfir. Bakið brauðið við 180° í 15 mínútur eða þar til brauðteningarnir eru stökkir.
Færið sigtið með tómötunum af skálinni, en í henni ætti að vera nokkur safi af tómötunum. Hrærið pressuðum hvítlauk, sinnepi og ediki saman við safann og þeytið að lokum afganginum af ólífuolíunni saman við. Bragðbætið með salti, pipar og ediki ef þarf.
Blandið tómötum og rauðlauk saman við sósuna, bætið síðan brauðinu við og að lokum saxaðri basiliku. Látið standa í 30 mínútur áður en salatið er borið fram, gott er að hræra í því annað slagið.


Tómatsúpa með sólþurrkuðum tómötum
1 laukur
1 sellerístöngull
3 gulrætur
1 hvítlauksrif
2 dósir niðursoðnir tómatar
1 krukka af sólþurrkuðum tómötum, olían sigtuð frá
1 1/2 líter grænmetissoð
1 dl. rjómi
Skorpa af parmesan osti (má sleppa)
1 búnt fersk basilika
Salt og pipar eftir smekk

Saxið lauk, sellerí, hvítlauk og gulrætur og steikið í olíu þar til mjúkt en ekki brúnað. Bætið þá niðursoðnum tómötum og sólþurrkuðum tómötum við ásamt grænmetissoði. Setjið skorpu af parmesan osti í pottinn og látið sjóða við vægan hita í eina klukkustund. Takið þá parmesan skorpuna úr pottinum og maukið súpuna. Bætið rjómanum við og bragðbætið með salti og pipar. Saxið basilikuna og dreifið yfir súpuna áður en hún er borin fram.

Pistasíukaka
175 gr. marsipan
150 gr. smjör
130 gr. sykur
1/4 tesk. salt
3 egg
70 gr. pistasíur

Krem:
100 gr. hvítt súkkulaði
1 1/2 dl. rjómi
100 gr. vanilluskyr

Saxið marsipanið og hrærið það ásamt smjöri, sykri og salti þar til allt hefur blandast vel. Bætið eggjunum við, einu í einu og þeytið vel á milli. Malið pistasíurnar í matvinnsluvél og blandið þeim saman við. Setjið deigið í kringlótt form og bakið í um 30 mínútur.

Krem:
Hellið rjómanum í pott og látið suðuna koma upp. Slökkvið á hitanum, bætið súkkulaðinu saman við og látið það bráðna í rjómanum. Látið blönduna kólna í um klukkustund. Hrærið þá skyrinu saman við, setjið kremið í ísskáp og kælið í um 3 klukkustundir. Þeytið kremið í hrærivél áður en það er sett á kökuna en við það þykknar kremið mikið. Það er gott að bera fram fersk hindber með kökunni

Espresso Martini
1 hluti kalt espresso kaffi
1 hluti vodki
1 hluti Kahlua (eða annar kaffilíkjör)
1/2 hluti sykursíróp

Hellið öllu í kokteilhristara ásamt klaka. Hristið vel og hellið í martiniglös. Skreytið með kaffibaunum.

Sykursíróp:
1 dl. sykur
1 dl. kalt vatn

Sykur og vatn sett í pott og soðið saman þar til sykurinn hefur bráðnað.


No comments:

Post a Comment