Bleikur og æðislegur GIN FIZZ
Hver blanda dugar í 2 glös.
60 ml WILD PINK GIN (íslenskt, fæst í ÁTVR)
25 ml sítrónusafi – alveg fulla 25 ml
25 ml sykursíróp – ég notaði Grenadine (betra) – má draga aðeins úr magninu
1 eggjahvíta / 15 ml aquafaba – ég sleppti því (vegan þemað) en það er mjög gott að hafa það.
50 ml sódavatn
Aðferð:
Ég setti sykurrönd á glasbarminn. Dýfði í Grenadine og síðan í sykur. Gott að setja glösin í frysti smá stund til að ná þeim vel köldum, annars í ísskáp í heldur lengri tíma.
Setjið gin, síróp, sítrónusafa (og eggjahvítu) í kokteilhristara og hristið með klökum í 30 sekúndur.
Hellið í ískalt glas og fyllið upp með sódavatni.
Fallegt er að nota sítrónubörk sem skreytingu.
Njótið af ábyrgð.
Vegan grænmetisrúllur í hrísrjónapappír með ídýfu
Grænmeti skorin í strimla. Fallegast að hafa mismunandi liti.
Pappírinn bleyttur (varlega) í volgu vatni þar til þær byrja að mýkjast upp.
Lagðar á borð með smá vatni undir (annars geta þær límst við). Grænmetið lagt á og rúllað þétt upp. Ágætt að skera hverja rúllu í tvennt til að fá hæfilega stærð.
Vegan ídýfa
1/2 bolli tahini
2 msk ólífuolía
1 msk hlynsíróp
1/2 tsk sjávarsalt
2 msk steinselja þurrkuð
6 msk vatn
Smá sítrónusafi
Vatn þar til að hún verður passlega þykk
Ólífuolía, sesamfræ og saxaður kóríander til skrauts
Setjið allt í matvinnsluvél eða lítinn blandara og blandið vel saman.
Setjið í litla skál og toppið með ólífuolíu, sesamfræjum og kóríander.
Vegan baunaréttur með kólumbísku ívafi
1 dós af baunum/ eða einn og hálfur bolli af baunum sem hafa legið í vatni yfir nótt og þarf að sjóða í klukkutíma áður en það er notað. Má vera hvaða baunir sem er, Kólumbíubúar elska nýrnabaunir, kjúklingabaunir og linsubaunir. Ég notaði kjúklingabaunir í dós (úr Ég elska Cosco).
Saxaður rauðlaukur
1-2 Hvítlaukur
2-3 gulrætur
4-5 sveppir
1 rauð paprika
Sætar kartöflur skorið í ferninga
Blómakál eða brokkólí
Maukaðir tómatar
Tómat púrra
Tómat Passata – sleppti þessu en gæti kannski verið betra að nota.
Salt og pipar
Grænmetiskraftur
Val: Rauður Chilí – setti smávegis af chilidufti í.
Aðferð
Ég byrja að skera grænmetið í teninga eða smærri eininga.
Byrja að steikja rauðlauk, hvíklauk, gulrætur, paprika, sætar karöflur, blómkálið (og oumph). Ég nota oft smá vatn í staðinn fyrir ólíu fyrir minna fitu.
Þegar grænmetið er mjúkt þá bæti ég maukaðir tómatar, púrre og passata við og einn grænmetistening og læt það malla.
Síðan bæti ég við baunir og krydda með salt og pipar eftir smekk.
Þegar allt er að verða tilbúið þá bæti ég við sveppina og chilí.
Vegan sveppa risotto
Ég lengdi eldunartímann með því að hafa lágan hita því mér finnst þetta vera full stuttur eldunartími sem er gefinn upp. Þetta virkar í raun eins og þegar hrísgrjónagrautur er eldaður. Hann verður betri eftir því sem hann er eldaður lengur á lægri hita og með því að bæta við nægri mjólk.
Add olive oil to a pot with chopped onion and sauté on medium high for a couple of minutes until softened. Ég notaði einn stóran lauk.
Add sliced mushrooms and garlic and toss with the onions. Ég notaði 2 bakka af sveppum og um 3 lauf af hvítlauk.
Cover the pot and cook for a couple of minutes until the mushrooms have released some
of their water.
Then remove the lid and add the risotto rice and sauté it with the onions. Hjá mér voru um 400 gr. af hrísgrjónum, það skiptir máli að nota risottó hrísgrjón.
Add 3 cups of vegetable stock, stir well, cover and simmer for around 20 minutes until the broth is mostly absorbed.
Add 1 and 1/2 cups vegetable stock, stir well again, cover and simmer for around 10 minutes until the broth is mostly absorbed.
Then add a final 1 and 1/2 cups of vegetable stock, stir well again, cover and simmer for a final 5-10 minutes.
It’s ready when all the stock has been mostly absorbed by the rice.
Turn off the heat and stir in 2 Tbsp of vegan butter.
Add sea salt and black pepper to taste.
Hér setti ég líka slatta af vegan parmesan osti.
Serve it topped with fresh chopped parsley and ground black pepper.
Mulligatowny súpa, uppskrift úr Grænkerakrásir
1)
2 msk ólífuolía
1 laukur
1 stór gulrót
½ krukka jalapenopipar – ég minnkaði þetta magn mjög mikið, setti um 1/8 af krukku í mesta lagi.
Laukur og gulrót og jalapenopipar sneitt niður og steikt í olíunni í um 4-5 mínútur.
2)
3 hvítlauksgeirar pressaðir
1 msk rifin engiferrót
2 lítil rauð epli, afhýdd, kjarni tekinn úr og skorin í sneiðar
1 dós tómatar
Þessu er bætt útí og látið malla í um 3 mínútur.
3)
1 tsk karrí
1 tsk mulið kúmen
1 tsk paprika
1 tsk túrmerik
1 tsk mulinn svartur pipar
½ tsk kanill
½ tsk kardimomma
½ tsk timian
Bætt úti pottinn og öllu blandað vel saman.
4)
1 dl rauðar linsubaunir
1 ½ grænmetisteningur leystur upp í 2 dl soðnu vatni
1 ½ dós ósæt kókosmjólk
Sett útí og hitað að suðu. Hitinn þá lækkaður og látið malla í um 30 mínútur.
5)
Um 75% af súpunni sett í blandara og maukað. Hellt aftur í pottinn og hitað aftur.
Smakkað til með salti og pipar.
6)
Kasjúhnetur léttsteiktar á pönnu í 3-4 mínútur. Borið fram með súpunni ásamt söxuðu (betra að rífa finnst mér) kóriander.
Vegan eplakaka með kanilkurli og vegan sýrður rjómi
2,5 dl möndlumjólk (eða önnur að eigin vali)
2 msk eplaedik
5 dl hveiti
1,5 dl sykur
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
1 tsk vanillusykur
1 tsk kanill
1/2 tsk kardimommukrydd
1 dl sólkjarnaolía
2 epli
Kanilmulningur
1 dl sykur
1 tsk kanill
1 msk mjúkt vegan smjör
Blandið öllu saman í skál.
Blandið mjólkinni og eplaediki saman og látið standa í skál í nokkrar mínútur.
Blandið þurrefnum saman í skál og síðan mjólkurblöndunni og olíu saman við.
Smyrjið bökunarform og hellið deiginu þar í.
Skerið eplin í bita og stingið þeim í deigið.
Stráið kanilkurlinu yfir.
Bakið í 180°c heitum ofni. Ég held að ég hafi bakað kökuna í um 45 mín.










No comments:
Post a Comment