Sunday, May 30, 2021

Maíklúbbur hjá Ingibjörgu

 Krabbasalat
 200   krabbakjöt (surimi)
 1 stk. rauðlaukur
 sýrður rjómi 
 salt og pipar eftir smekk
 nokkrir dropar af sítrónu/lime safa
 
Skera krabbakjötið og rauðlaukinn mjög smátt (gott að setja í matvinnsluvél)
Blandið saman við sýrða rjómann, safann og kryddið eftir smekk.

                       
Rauðrófubaka 
1 msk. ólífuolía
2 msk. smjör
1 laukur, fínst sneiddur
2-3 msk. sérri
3-4 forbakaðar rauðrófur     
nokkrar valhnétur
3-4 egg
2 dl. rjómi
sýrður rjómi með graslauk
fersk basilikulauf
salt, pipar og chilli pipar - allt eftir sekk

Bökuskel
250 gr. hveiti
125 gr. smjör
salt og kalt vatn eins og þarf
            
Hita ofninn í 190*c forbakið bökuskelina í 10-15 mín. Muna  að pikka botninn með gaffli svo bökuskelin lyfti sér ekki. 
Hitið olíu og smör saman á pönnu og steikið laukinn við meðalhita þar til hann er orðinn mjúkur og glær. Bætið það sérrii út á pönnuna og látið malla í nokkrar mín. Bragðbætið með salti og pipar. Látið kólna í smá stund og dreifið síðan yfir botninn á forbakaðri bökuskelinni. Skerið rauðrófur í þunnar sneiðar og raðið þeim fallega í formið og stráið valhnétum yfir. Pískið saman egg, sýrðan rjóma og rjóma og setjið krydd saman við. Hellið eggjablöndunni yfir formið og bakið í 30-40 mín. Skreytið með basilikulaufum. 

Rækjuréttur
Risarækjur
perlubygg + grænmetistengingur
púrrulaukur
maisbaunir
kál
tómatar
mango
salthnétur
BBQ oil garlic 
 
Rækjurnar eru marineraðar í BBQ olíunni í góða stund (ca. 4-6 tíma). Perlubyggið soðið í vatni með grænmetisteningi. 
Perlubygg og kálið í botnin á fati síðan sett skorinn púrrulaukur, maisbaunir og salthnétur.                    
Rækjurnar steiktar og settar í fatið tómatar skornið og sett yfir. Safinn af rækjunum settur yfir.

Sósa
Sýrður rjómi
hvítlaukur
smá rjómi
Sriracha hot cilli sauce eftir smekk
        

Fiskisúpa með karry og ferskjum
olía
1 stór laukur
1-2 hvítlauksrif
1 rauð paprika
brokkoli (eftir smekk) 
1-2 tómatar í dós
1 dós ferskjur + safinn
grænmetiskraftur
lemongrass
karri (slatti)
rjómi eftir smekk
rjómaostur (bragðtegund að hætti kokksins og allt eftir smekk)
vatn
fiskur eftir smekk
Kóriander 
 
Laukur, hvítlaukur og karri svissaður í olíu. Tómatar, papríka, brokkoli , ferskjur (saxaðað), ferskjusafinn, og rjómaostur. Látið malla í ca. 20. mín þá er rjóminn settur út í og kryddað eftir smekk. Rétt áður en súpan er borin fram er fiskurinn settur út í og látið bíða í ca. 5 mín og lemongrasstönglarnir eru veiddir upp úr súpunni. 

Sítrónubaka með sítrónu rjóma
https://www.alberteldar.com/2020/04/20/sjukleg-sitronukaka/
Skreytt með hindberjum
þeyta rjóma setja vanillu og lemon curd út í. 


No comments:

Post a Comment