Camenbert snitta með sætri peru
1 stk baguette brauð
1 ½ Camenbert ostur
1 ½ pera
Klettasalat (um ½ poki)
Ristaðar furuhnetur (um ½ poki)
Ólífuolía
Hvítlauksduft
Gróft salt
Sykur og smjör til að brúna perusneiðarnar
Skerið brauðið á ská í sneiðar, penslið með ólífuolíu, stráið hvítlauksdufti og grófu salti yfir. Ristið í um 3 mínútur í ofni við 200°C.
Kælið brauðið aðeins og setjið klettasalat yfir hverja sneið.
Skerið peruna í sneiðar sem passa brauðstærðinni ykkar (ekki of þykkar).
Stráið sykri á pönnu, hitið þar til hann bráðnar og bætið þá smjörklípu saman við og lækkið hitann.
Brúnið perusneiðarnar á báðum hliðum, þegar þið snúið er Camenbert sneið lögð á hverja perusneið þar til osturinn fer aðeins að bráðna.
Þá er peru/Camenbertsneiðin færð yfir á snittuna, ofan á klettasalatið.
Ristuðum furuhnetum er að lokum stráði yfir
Döðlusnitta
Um 10-12 snittur
1 x stórt snittubrauð
1 x Dala Auður
90 g Til hamingju valhnetur
150 g Til hamingju saxaðar döðlur
3 msk. hunang
Salt
Balsamic gljái
Ólífuolía
Hitið ofninn í 200°C.
Saxið hneturnar gróft og ristið í ofninum í um 5 mínútur.
Skerið brauðið í sneiðar, penslið báðar hliðar með ólífuolíu, saltið örlítið, raðið á bökunarpappír á grind og ristið í ofninum í um 5 mínútur.
Skerið ostinn í sneiðar og setjið á brauðið þegar það kemur úr ofninum og setjið aftur inn í ofn í um 3 mínútur eða þar til osturinn bráðnar aðeins.
Hrærið saman söxuðum valhnetum, döðlum, hunangi og um ½ tsk. af salti og skiptið á milli brauðsneiðanna.
Setjið balsamic gljáa yfir hverja snittu.
Quiche með blönduðum sveppum
Deig:
200 g smjör í bitum
160 g rjómaostur
240 g hveiti
Fylling:
5 egg
2 dl mjólk
2 dl rjómi
10 gr hveiti
1 msk salt
1 msk þurrkað oregano
1 msk hvítlaukur , saxaður
1-2 öskjur blandaðir sveppir
50 gr ostur, rifinn
25 gr parmesanostur, rifinn
Smá gráðostur
Rækjuréttur
400-500 gr rækjur
Hrísgrjón, soðin með lauk og karrý
1 dós aspas
Tómatar
Salatblöð
Salt, pipar, basilica.
Salat
½ cup raw pecans (halves or pieces)
5 ounces baby arugula
2 ounces (about ½ cup) goat cheese or feta, crumbled
1 large ripe Bartlett pear, thinly sliced
1 Honeycrisp or Gala apple, thinly sliced
Arils from 1 pomegranate
Ginger dressing
¼ cup extra-virgin olive oil
1 tablespoon apple cider vinegar, to taste
1 tablespoon Dijon mustard
1 tablespoon maple syrup or honey
1 teaspoon finely grated fresh ginger
¼ teaspoon fine sea salt
About 10 twists of freshly ground black pepper
Brokkolisúpa
Smjör
Sætur laukur
Brokkolíhaus
Grænmetiskraftur
Pera eða epli
Rjómaostur
Piparostur mjúkur
Cayenne pipar, pipar, salt, karry, paprika.
Matreiðslurjómi og rjómi
Kaka með tiramisu
Frönsk súkkulaðikaka
125 g dökkt gæða-súkkulaði að eigin vali
125 g smjör skorið í teninga
3 msk mjólk
125 g sykur
2 msk hveiti
2 egg, rauður og hvítur aðskildar
klípa af salti
Aðferð:
Hitið ofninn í 180 gráður og smyrjið 20-25 cm smelluform með smjöri.
Bræðið súkkulaði, smjör og mjólk í potti á miðlungshita. Hrærið vel saman.
Slökkvið á hellunni og bætið sykri og eggjarauðum saman við, einni í einu, og hrærið vel á meðan. Sigtið hveitið saman við og hrærið vel.
Þeytið eggjahvíturnar saman í skál ásamt klípu af satli. Hrærið síðan súkkulaðiblöndunni saman við í skömmtum og hrærið rólega á milli skammta. Hellið blöndunni í formið og bakið í um 30-35 mín. Lagði rúsínur, rommkúlur og makkarónur í romm og setti á neðri botninn.
Tiramisu, ekki lady fingers
4 eggjarauður
140 g flórsykur
500 g Mascarpone rjómaostur við stofuhita
Fræ úr einni vanillustöng
500 ml þeyttur rjómi (skipt í 100 ml og 400 ml)
230 ml kaffi (kælt)
3 msk. Captain Morgan Black Spiced romm
Um 2 ½ pk. Lady fingers kex (hver pakki 125 g)
Bökunarkakó til skrauts
Þeytið saman eggjarauður og flórsykur þar til létt og þykk blanda myndast (um 5 mín).
Bætið þá Mascarpone osti og fræum úr vanillustöng saman við og þeytið vel áfram þar til vel blandað.
Vefjið þá 100 ml af þeyttum rjóma saman við með sleif og leggið blönduna til hliðar.
Hellið kaffi og rommi saman í grunnan disk með köntum sem auðvelt er að dýfa kexinu í án þess að kaffæra því alveg.
Dýfið Lady fingers kexi snöggt í kaffi/romm á báðum hliðum og raðið í botninn á um 25×25 cm formi (passið ykkur að gegnbleyta það ekki því þá verður það lint og slepjulegt).
Setjið helming rjómaostablöndunnar yfir kexið og dreifið úr með kökuspaða.
Dýfið næsta lagi af kexi í kaffi/romm og leggið ofan á og smyrjið síðan restinni af rjómaostablöndunni þar yfir.
Plastið og kælið í að minnsta kosti 4 klukkustundir (eða yfir nótt).









No comments:
Post a Comment