Snittur
Lifrarpate frá Kjöthöllinni með steiktu beikni
Graflaxsalat (graflax, graflaxsósa, rjómi og sýrður rjómi)
Ostafylltir aspasvasar
24 stk. aspasstilkar, litlir
1 msk. ólífuolía
1 stk. smjördeig
1 stk. Óðals Ísbúi, rifinn
8 sneiðar hráskinka
1 stk. egg, hrært
gott salt og pipar
Hitið ofn í 200 gráður. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
Fletjið aðeins út smjördeigið á hveitistráðu borði.
Skerið út úr því ferninga sem eru um 10x10 cm á stærð.
Snyrtið aspasinn, skerið neðri endann af honum.
Setjið á fat og hellið yfir hann ólífuolíu, stráið salti og pipar yfir og nuddið vel saman.
Brjótið hverja hráskinkusneið saman og leggið á hvern smjördeigskassa.
Þá fer aspasinn yfir skinkuna, horn í horn, fjórir stilkar fyrir hvern vasa.
Stráið rifnum osti yfir aspasinn þannig að töluvert sé af honum, eða um 2 msk.
Brjótið hornin á smjördeiginu yfir aspasinn og lokið vasanum.
Smyrjið með hrærðu eggi og saltið aðeins og piprið.
Setjið í ofn og bakið í um 12-15 mínútur.
Berið fram heitt en ekki verra þegar farið að kólna aðeins.
Saltfiskur í hátíðarbúningi
800 g saltfiskhnakkar vel útvatnaðir
svartur pipar
ögn af hveiti
ólífuolía
brauðmylsna
hvítlaukssmjör
Skerið saltfiskinn í fjóra jafna bita og kryddið örlítið með svörtum pipar. Veltið þeim upp úr hveiti og steikið upp úr ólífuolíunni, um það bil tvær mínútur á hvorri hlið. Færið fiskinn upp á fat og setjið brauðmylsnu og hvítlaukssmjör ofan á. Setjið fatið í 170 gráðu heitan ofn í um það bil 15 mínútur.
Laukblanda
2 laukar skornir í báta
12 kirsuberjatómatar skornir í fernt
16 ólífur
ólífuolía
hvítlaukssmjör
Maldonsalt
svartur pipar
Léttsteikið lauk, tómata og ólífur í hvítlaukssmjöri og ólífuolíu. Kryddið örlítið með Maldonsalti og pipar. Þá er rétturinn tilbúinn á borð.
Eftirréttarbomba Mæju
Myllubotnar með mynd af mömmu og á milli er rjómi með líkjör, bláberjum og súkkulaði









No comments:
Post a Comment