Bakaður ostur með mango chutney og pican hnetum.
Botn; 250 gr hveiti, 150 gr.
smör, smá salt og 4. msk kalt vatn (meira ef þarf). öllu hráefninu hnoðað saman
og geymt smástund í kæli. Flatt út í form og pikkað í botninn.
Fylling: Aspas úr dós eða ferskur
(ég notaði úr dós),1/2 piparostur, rauðlaukur, hvítlaukur, sýrðurrjómi
með graslauk, 4 egg. skvetta af rjóma, salt og pipar eftir smekk.
Bræða smjör og steikja rauðlaukinn og hvítlaukinn í
smá stund (passa bara að brúna ekki laukinn). Aspasnum raðað fallega á botninn,
laukurinn setur ofan á og piparosturinn skorinn í þunnar sneiðar og lagt ofan
á. Hræra saman sýrðum rjóma, eggjum og rjóma þessu er hellt yfir. Krydda eftri
smekk. Ofninn hitaður í 200°C í ca. 40 mínútu
Hörpu- og humarsalat með mangósósu
Gott salat, kirsuberjatómatar, melóna, paprika, ristuð
hnetublanda.
Skolið humarinn og hörpudiskinn vel og þerrið. Steikið
upp úr smjöri ásamt pressuðum hvítlauk, smátt skornu chilli og ferskri
steinselju.
Skerið öll hráefnin smátt niður og blandið saman í
skál eða leggið á fat. Setjið hörpuskelina og humarinn yfir salatið. í lokinn
sáldrið ristuðum hnetum yfir.
Mangósósa: Mangó ca. 1/2 (
ég notaði frosið), 1. dós sýrður rjómi, 2 msk majónes 1
hvítlauskrif 1/4 rautt chilli, 1. tsk hunang, salt og pitar eftir smekk. Allt
sett í matvinnsluvél og maukað. Gott að kæla sósuna vel áður en hún er borin
fram.
Súpa með grænum baunum og sítrónugrasi
700 gr grænar frosnar baunir, 2 dósir kókosmjólk, grænmetissoð, 4 msk grænt karrímauk (curry paste), 4 hvítlaugsgeirar 2 laukar (stórir), 2 Kaffir límónulauf, 2 stikar sítrónugras, salt eftir smekk.
Hitið olíu á pönnu og steikið lauk, hvítlauk og grænt
karrímauk við miðlungshita. Setjið kómónulauf og sítrónugras og bætið í pottinn
ásamt frosnum baunum. Hitið allt saman ásamt soðinu og kókosmjólkinni. Veiðið
sítrónugrasið og límónugrasið upp úr og maukið súpuna áður en hún er borin
fram. Gott að bera fram með rjóma. (https://www.mbl.is/matur/frettir/2017/03/14/otrulega_einfold_og_ljuffeng_supa/)
Karamellusostaskyrterta
Botn: 1 pakki af Bastogne Duo kexi frá LU
100 gr smör
Kexkökurnar eru muldar í matvinnsluvél, smörið brætt
og er þessu blandað saman og sett í botninn á eldföstu móti. Kælt.
Fylling: 1 dós Mascarpone rjómaostur, 1 stór
dós af vanilluskyri 2,5 dl rjómi.
Þeyta rjómaostinn og skyrið saman. Rjóminn er þeyttur
og blandað varlega saman við rjómaostablönduna. Ég setti smá af rjómasúkkulaði
með karamellukurli og íslensku sjávarsalti í blönduna. Rjómablandan sett yfir
kexbotninn og tertan er kæld í frysti í ca. 30 mínútur.
Ofn á: 150 gr Síríus rjómasúkkulaði með karamellukurli
og íslensku sjávarsalti, 8 msk rjómi. Bræða saman súkkulaðið og rjóma. Hrært
vel saman og sett yfir kökuna.
Tilvalið að frysta kökuna en það þarf að taka hana út
með góðum fyirvara (ca. 2,5 tími). Skreytt að vild. 😊
(mömmur.is)








No comments:
Post a Comment