Saturday, September 6, 2025

Septemberklúbbur hjá Lindu

 




Bakaður kúrbítur
2 kúrbítar
3 sneiðar hvítt brauð
2-3 msk mjólk
Salt og pipar
3-4 msk Parmesan ostur 
1 egg

Lítill kúrbítur skorið í tvennt og síðan langsöm. Soðinn örstutt.
Franskbrauð bleitt upp í mjólk og skafið inn úr kúrbítnum, salt, pipar, parmesan og egg bætt út í og hnoðað.
Deigið sett í kúrbítinn, osti dreift yfir og bakað við 200 C í 30 mín.

Salat (fyrir 3-4)
2 bollar af soðnum hrísgrjónum
2 msk soya eða tamari sósa
2-3 msk chili eða sesam olía

Salatið:
200 gr soðnar edamame baunir
1 bolli saxaður kóriander
1 gúrka skorin
1 avakadó saxað
1 rauðlaukur saxaður (lítill)
2 vorlaukar

Salat dressing:
2 msk tahini
Safi af einni lime
2 msk maple sýróp
1 hvítlaukur saxaður
1 tsk saxaður engifer
Sesamfræ til að strá yfir

Hita ofninn í 200 C.  Setja hrísgrjónin í þunnt laga á smjörpappír hella soya og olíu yfir,  baka í 20 mín. Kæla. 
Saxa grænmetið í skál og setja hrísgrjón og salatdressingu yfir.

Japanskt mjólkurbrauð
480 gr hveiti
½ tsk salt
1 bréf ger
1 egg
200 ml mjólk
50 ml Condensed mjólk
50 gr brætt smjör

Leysa gerið upp í volgri mjólk. Setja all efnið í hveitið og hnoða. Láta deigið hefast í rúml. klukkustund. Deigið skipt í tvær bollur og flatt út á borð (breiddin á deiginu eins og á kökumóti), rúllað upp langsöm eins og í pylsu. Deigið sett í mót og skorið í það þversum nokkrar ráki.  Látið hefast í mótinu í 1 klst. Bakað við 180 C í 25 mín.
1 msk smjör og 1 msk Condenced mjólk brætt saman og penslað á brauðið.



Dumplings súpa
1-2 laukar smátt saxaðir
2 hvítlaukar smátt saxaðir
Smá engifer smátt saxaður (um 1 cm)
Smá kóriander saxaður
1 líter grænmetissoð
3 msk soyasósa
1 msk sesamolía
Nokkrir sveppir saxaðir (um 6-8 stórir)
Kínakál, góður slatti
Risarækjur (eftir smekk)
Dumplings (grænmetis dupmlings keypt í Fiska, eftir smekk)
Vorlaukur (um 6 stk)

Létt steikja lauk, hvítlauk,engifer og kóriander á meðalhita. Hella soði
út í og látið sjóða í 5 mín. Soyasósa og sesamolía sett út í. Þá er
sveppum,kínakáli, risarækjum og dumplings bætt út í og soðið í
nokkrar mín. Að lokum er vorlauk stráð yfir.
Ég bætti við auka salti og smá chili.

Heimagert konfekt
1 bolli grísk jógúrt
½ bolli pistasíusmjör
1/3 bolli hunang
¼ bolli hnetur saxaða
100 gr dökkt súkkulaði brætt
100 gr hvítt súkkulaði til að dýfa í

Allt sett í skál og hrært saman. Setja með skeið á smjörpappír og frysta. Þegar konfektið er frosið er því dyfið í hvítt brætt súkkulaði og geymt í frysti.


No comments:

Post a Comment