Sílexíur
Wednesday, November 19, 2025
Nóvemberklúbbur hjá Ágústu
Saturday, October 25, 2025
Októberklúbbur hjá Ingibjörgu
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 1 rauð paprika
- 1-2 msk smjör
- 8 dl vatn
- 2 fiskiteninga
- 400 g fiskur hvítur/bleikur gott að hafa bæði
- 2-3 dl rjómi
- 200 jöklasalat (skorið í strimla)
- 200 rifinn ostur
- 2 msk ferskt dill
- 1 1/4 hveiti
- 80 kalt smjör
- 1/2 bolli rifinn parmesan ostur
- 1 msk gott sinnep
- 2-3 msk ísvatn
- 1 msk olifuolía
- 30 g smjör
- 4 meðal stórir rauðlaukar, saxaðir
- 1 msk rauðvíns eða balsamik edik
- 2 tsk púðursykur
- 3 egg
- 1/2 bolli rjómi
- 80 g döðlur, skornar niður
- 1/2 dl vatn
- 5 eggjahvítur
- 70 g döðlur, skornar niður
- 80 g möndluflögur, ristaðar á pönnu
- 80 g dökkt súkkulaði, saxað
Saturday, September 6, 2025
Septemberklúbbur hjá Lindu
2 kúrbítar
3 sneiðar hvítt brauð
2-3 msk mjólk
Salt og pipar
3-4 msk Parmesan ostur
1 egg
Lítill kúrbítur skorið í tvennt og síðan langsöm. Soðinn örstutt.
Franskbrauð bleitt upp í mjólk og skafið inn úr kúrbítnum, salt, pipar, parmesan og egg bætt út í og hnoðað.
Deigið sett í kúrbítinn, osti dreift yfir og bakað við 200 C í 30 mín.
2 bollar af soðnum hrísgrjónum
2 msk soya eða tamari sósa
2-3 msk chili eða sesam olía
Salatið:
200 gr soðnar edamame baunir
1 bolli saxaður kóriander
1 gúrka skorin
1 avakadó saxað
1 rauðlaukur saxaður (lítill)
2 vorlaukar
Salat dressing:
2 msk tahini
Safi af einni lime
2 msk maple sýróp
1 hvítlaukur saxaður
1 tsk saxaður engifer
Sesamfræ til að strá yfir
Hita ofninn í 200 C. Setja hrísgrjónin í þunnt laga á smjörpappír hella soya og olíu yfir, baka í 20 mín. Kæla.
Saxa grænmetið í skál og setja hrísgrjón og salatdressingu yfir.
480 gr hveiti
½ tsk salt
1 bréf ger
1 egg
200 ml mjólk
50 ml Condensed mjólk
50 gr brætt smjör
Leysa gerið upp í volgri mjólk. Setja all efnið í hveitið og hnoða. Láta deigið hefast í rúml. klukkustund. Deigið skipt í tvær bollur og flatt út á borð (breiddin á deiginu eins og á kökumóti), rúllað upp langsöm eins og í pylsu. Deigið sett í mót og skorið í það þversum nokkrar ráki. Látið hefast í mótinu í 1 klst. Bakað við 180 C í 25 mín.
1 msk smjör og 1 msk Condenced mjólk brætt saman og penslað á brauðið.
1-2 laukar smátt saxaðir
2 hvítlaukar smátt saxaðir
Smá engifer smátt saxaður (um 1 cm)
Smá kóriander saxaður
1 líter grænmetissoð
3 msk soyasósa
1 msk sesamolía
Nokkrir sveppir saxaðir (um 6-8 stórir)
Kínakál, góður slatti
Risarækjur (eftir smekk)
Dumplings (grænmetis dupmlings keypt í Fiska, eftir smekk)
Vorlaukur (um 6 stk)
Létt steikja lauk, hvítlauk,engifer og kóriander á meðalhita. Hella soði
út í og látið sjóða í 5 mín. Soyasósa og sesamolía sett út í. Þá er
sveppum,kínakáli, risarækjum og dumplings bætt út í og soðið í
nokkrar mín. Að lokum er vorlauk stráð yfir.
Ég bætti við auka salti og smá chili.
1 bolli grísk jógúrt
½ bolli pistasíusmjör
1/3 bolli hunang
¼ bolli hnetur saxaða
100 gr dökkt súkkulaði brætt
100 gr hvítt súkkulaði til að dýfa í
Allt sett í skál og hrært saman. Setja með skeið á smjörpappír og frysta. Þegar konfektið er frosið er því dyfið í hvítt brætt súkkulaði og geymt í frysti.
Thursday, September 1, 2022
Júníklúbbur hjá Mæju
Saturday, May 21, 2022
Aprílklúbbur hjá Fanney
Sunday, March 6, 2022
Febrúarklúbbur hjá Hrafnhildi
Smjörsteiktar perur með brie og furuhnetum á ruccolabeði
·
400 g brieostur
·
200 g ruccola
·
75 g furuhnetur
·
4 perur (notaði bæði nýjar og úr dós)
·
ólívuolía
·
balsamiksýróp
·
gróft salt
·
smjör
Skolið ruccola og dreifið úr því yfir fat. Ristið furuhneturnar
á pönnu (passið að hafa ekki of háan hita svo þær brenni ekki!).
Skerið perurnar í sneiðar og steikið úr smjöri á pönnu. Skerið
brieostinn í sneiðar og leggið yfir perurnar á heitri pönnunni.
Þegar brieosturinn byrjar að bráðna eru perurnar teknar af
pönnunni og lagðar ofan á ruccolað. Að lokum eru ólívuolía, gróft salt,
balsamiksýróp og furuhnetur sett yfir.
Kjúklingasúpa með ferskjum
·
1 stór laukur (smátt saxaður)
·
smjör
·
3-4 tsk karrýmauk (ég nota Pataka´s
mild curry paste, coriander & cumin)
·
4 hvítlauksrif, pressuð
·
1 ½ dós niðursoðnir tómatar
·
5 dl kjúklingasoð (vatn og 2 kjúklingateningar)
·
1 lítil dós tómatpuré
·
1/2 líter rjómi
·
1 stór dós niðursoðnar ferskjur
·
3 kjúklingabringur.
Bræðið smjör og karrýmauk í potti og
bætið lauknum í. Látið laukinn mýkjast við vægan hita. Bætið tómötum,
tómatpuré, kjúklingasoði, hvítlauk og rjóma saman við og látið sjóða við vægan
hita í ca 10 mínútur.
Skerið ferskjurnar smátt niður og bætið
út í ásamt safanum. Látið sjóða áfram í aðrar 10 mínútur.
Skerið kjúklingabringurnar smátt og
steikið á pönnu upp úr smjöri. Saltið með maldonsalti. Bætið kjúklingabitunum
út í súpuna og látið hana sjóða í 5 mínútur til viðbótar.







































